Fíflarót - 100 gr.
Vörulýsing
VNR: 608Fíflarót (Taraxacum officinale)
Styrkjandi fyrir meltingakerfið og lifrina. Vökva- og hægðalosandi og örvar gallmyndun í lifur. Þessi jurt er mest notuð fyrir lifrar og gallsjúkdóma eða þar sem mikið álag er á lifrinni eins og þegar fólk er að taka inn mikið af lyfjum. Fíflarótin örvar matarlystina með því að örva magasýrurnar. Því er hægt að nota fíflarótina með góðum árangri fyrir gamalt fólk sem hefur ekki mikla matarlyst og starfsemin í meltingarveginum orðin hæg. Einnig er hægt að nota rótina þegar fólk er að byggja sjálfan sig upp eftir veikindi, hún eflir þá starfsemi lifrarinnar og nærir hana.
Virk efni: M.a. taraxacin, taraxacerin og inulin.
Notkun: Látið eina matskeið í hálfan lítra af vatni og sjóðið í 10 mínútur, síið og drekkið yfir tvo daga.