Frjósemi og meðganga studd með jurtum og næringu

Frjósemi þarf að vera til staðar til að búa til nýjan einstakling og viðhalda lífi á jörðinni. Flest viljum við vera frjósöm en það lánast því miður ekki öllum. 

Er hægt að gera eitthvað til að auka frjósemi?

Já það er hægt, en oft á tíðum er það erfitt og stundum er aðeins mögulegt að byggja upp kvenlíkamann fyrir glasafrjóvgun. Í flestum tilfellum tekst það en í sumum tilfellum verður maður að játa sig sigraðan.  

Hvað er hægt að nota til að auka frjósemi? 

Fyrsta skrefið er að koma líkamanum í heilbrigt ástand:

a)  Hreyfing er auðvitað mikilvægur þáttur. Finna þarf réttu líkamshreyfinguna sem hentar hverjum og einum. Ef einstaklingur er mjög stressaður og lætur umhverfið fara mikið inn á kerfið þá er besta hreyfingin jóga eða æfingar á þeim nótum.

b)  Gott og heilbrigt mataræði er nauðsynlegt til að búa til nýjan einstakling, þetta á bæði við um karlinn og konuna.  Best er að hafa fæðuna eins fjölbreytta og hægt er til að fá sem mest af öllum nauðsynlegum næringarefnum. Mikilvægt er að fæðan sé  laus við öll kemísk aukaefni, eins og mögulegt er. Æskilegt er að borða mikið af fersku grænmeti og ávöxtum. Fræ og hnetur innihalda einnig mikið af fjölbreyttum næringarefnum og nauðsynlegum fjölómettuðum fitusýrum. Best er að borða meiri fisk heldur en kjöt og nota af og til baunir í staðinn fyrir kjöt og fisk. Slepptu öllu sem er búið að dauðhreinsa eins og hvítt hveiti og sykur. Gott er að útbúa matinn sem mest til sjálfur, það tekur meiri tíma en það er þess virði. 

 Gott og heilbrigt mataræði er einnig hægt að nota til að byggja upp líkama konu og karls fyrir frjóvgun. 

a) Notið mataræðið sem ég lýsti hér að ofan.

b) Mjög gott er að fasta eftir að búið er að vera á þessu fæði í 3-4 mánuði. Þetta stuðlar af framleiðslu á heilbrigðum sæðisfrumum og eggjum. Það fer eftir því í hvaða líkamsástandi líkaminn er hversu lengi þarf að fasta. Ef einstaklingar eru að fasta í fyrsta skipti þá er gott að fasta í 4 daga eða jafnvel bara í einn dag. Fyrir suma hentar líka vel að fasta í einn dag einu sinni í viku. Sennilega er ástæðan fyrir ofnæmi og kvillum, sem oft byrja jafnvel strax eftir fæðingu, að foreldrar hafa ekki lifað heilsusamlegu lífi. Þetta eru atriði sem flestir hafa sennilega aldrei hugleitt en ég held að við verðum að fara hugsa okkar gang ef við ætlum ekki að halda áfram að framleiða einstaklinga með lélegt ónæmiskerfi. Það er auðvitað margt fleira sem þarf að hafa í huga til að bæta okkar heim svo að úr verði heilbrigðir einstaklingar. Við þurfum að standa saman og gera allt sem við getum sem einstaklingar og hópur. Það er heilmikið sem hægt er að gera sem einstaklingur, því margt smátt gerir eitt stórt. Það er ekki nóg að Jón í næsta húsi geri það sem þig langar að gera. Hættu nú að láta þig dreyma og framkvæmdu.

c)  Góð hvíld og svefn eru nauðsynleg til að viðhalda og byggja upp hverja manneskju.

d)  Það þarf auðvita ekki að nefna að best er að sleppa reykingum og áfengi ef fólk er að hugsa um að byggja upp heilbrigðan líkama.

e)  Okkur þarf að líða vel andlega og þar er heilmargt sem hægt er að gera. 

  • Stunda listgreinar.
  • Hlusta á tónlist.
  • Lesa góðar bækur.
  • Eyða tíma í náttúrunni.
  • Stunda hugleiðslu.
  • Stunda jógaæfingar.
  • Sækja myndlistarsýningar.
  • Fara í leikhús.


Þegar við erum búin að taka í gegn mataræðið, hreyfingu, svefn og andlega líðan þá má fara að spá í jurtir til að auka frjósemi. Jurtir sem eru notaðar innihalda flestar mikið af næringarefnum sem auka enn á hreysti líkamans.

Það eru til margar jurtir sem eru sagðar vera góðar til að auka frjósemi en sumar eru ekki alveg öruggar. Ég vil taka það skýrt fram að þið notið ekkert annað en það sem ég nefni hér nema að hafa spurt einhvern sem hefur vit á þessu hlutum, eins og grasalækni. Það þýði ekkert að spyrja lækni því að hann þekkir ekki jurtirnar, hann getur aðeins sagt "ekki taka neinar" því þá er hann öruggur. 

Ástæður fyrir ófrjósemi geta verið margar og mismunandi milli manna. Það getur oft verið ótrúlega auðvelt að byggja upp frjósemi hjá konu sem hefur kannski reynt að eignast börn í mörg ár.

Jurtir sem hjálpa við frjósemi

Hægt er að flokka jurtirnar sem hjálpa í nokkra flokka, eftir því hvaða áhrif við erum að ná úr þeim.

  • 1) Jurtir sem að næra og styrkja legið sjálft.
  • 2) Jurtir sem næra allan líkamann.
  • 3) Jurtir sem róa taugakerfið.
  • 4) Jurtir sem koma reglu á hormónakerfið.
  • 5) Jurtir sem að örva kynhvötina.

RAUÐSMÁRI:  Er sú jurt sem gerir hvað mest. Þessi jurt inniheldur hátt hlutfall vítamína sem hafa mjög góð áhrif á legið sjálft. Jurtin inniheldur hátt hlutfall próteina sem styrkja líkamann almennt, hátt hlutfall af kalki og magnesíum sem er mjög auðupptakanlegt og getur róað taugakerfið og örvað frjósemi. Einnig inniheldur hún mikið af öðrum steinefnum sem hafa góð áhrif á kynkirtlana og jafna hormónastarfsemina. Rauðsmári hjálpar líkamanum að leiðrétta sýru og basastig í líkamanum, vegna þess að hún er basísk. Þannig getur hún jafnvel hjálpað til við að jafna sýru og basastig í leggöngum og legi til að búa til réttar að stæður fyrir frjóvgun. 

BRENNINETLA:  Styrkir legið sjálft og er almennt styrkjandi fyrir líkamann vegna mikils magns af steinefnum og blaðgrænu sem nærir og styrkir hormónakerfið. Hún styrkir einnig nýru og nýrnahettur.  Hægt er að nota rauðsmára og brenninetlu saman og drekka te úr þessari blöndu, 1-2 msk í 1 bolla af soðnu vatni og hafa hlutföllin jöfn af báðum jurtum. Brenninetla inniheldur mikið járn og kalk sem er mjög auðupptakanlegt.

HINDBERJALAUF:  Er hægt að taka til að styrkja leg fyrir frjóvgun svo að slímhúðin í leginu taki á móti frjóvgaða egginu ef af frjóvgun verður. Þessi planta inniheldur einnig mikið af kalki. Hildberjalauf virkar mjög vel með rauðsmára og má nota sama skammt og fyrir brenninetlu. Látið jurtirnar standa í að minnsta kosti 15 mínútur. Þessar jurtir þarf í rauninni að taka í nokkra mánuði samfleytt, jafnvel upp í ár. 

MUNKAPIPAR:  Þarf stundum að nota til að jafna hormónastarfsemina. Hann virkar á heiladingulinn og jafnar stýrihormón frá heiladingli. Þetta getur hjálpað þegar um of mikila mjólkurhormónaframleiðslu er að ræða eða hvers konar ójafnvægi í hormónakerfinu. Þetta gildir bæði um konur og karla. Hér er notuð 1/2 tsk í 1 bolla vatn og suðan látin koma upp. Jurtin er látin standa yfir nótt og  blandan drukkin á fastanda maga að morgni. 

MARÍUSTAKKUR:  Er góð jurt þegar ójafnvægi er komið á estrogen framleiðsluna. Maríustakkurinn inniheldur jurtaestrogenlíka hormóna.     

Þetta eru þær fimm jurtir sem hægt er að nota til að auka frjósemina. Þær eru allar mjög öruggar í notkun og ættu ekki að geta valdið neinum skaða. Mikilvægt er að einstaklingar sem eru að velta fyrir sér að taka þessar jurtir hafi samráð við reyndan grasalækni áður, til að vera örugg um að verið sé að nota réttu jurtirnar. Ekki að jurtirnar geti valdið einhverjum skaða heldur til að ná sem bestum árangri.     

Húsráð til að auka frjósemi

Ég ætla hér að nefna ráð sem sagt er að hjálpi til að örva frjósemi en engar vísindalegar sannanir eru fyrir því að það virki. Það felst í að stjórna egglosi með ljósi. Ljós er látið loga í svefnherberginu þrjár nætur í röð um miðjan tíðahringinn en algjört myrkur haft allar aðrar nætur (sem þýðir að best er að gera þetta á veturna á Íslandi), og konan mun hafa egglos þegar ljósið er á. Á þeim tíma, þessum þrem ljósanóttum, eru mestar líkur á því að frjóvgun verði. Þessi aðferð virkar víst mjög vel ásamt jurtunum. Þau næringarefni sem nauðsynlegt er að taka á þessu tímabili eru kalk og magnesíum. Það eru tvö mikilvægustu steinefnin fyrir konuna til að auka líkur á frjóvgun og viðhalda þungun. Þess vegna er svona gott að nota hindberjalauf og brenninettlu þar eð þær jurtir innihalda hátt hlutfall af þessum steinefnum. Fyrir karlmanninn er mjög gott að taka E vítamín til að styrkja kynæxlunarkerfið. Hann getur líka notað jurtir sem innihalda jurtatestosteronlíka hormóna eins og jurtina TURNERA eða FREYSPÁLMA sem að örvar testosteron framleiðslu í líkamanum.

Hvað getur haft áhrif á frjósemi eða orsakað fósturlát?

1)  Reykingar.
2)  Alkóhól.
3)  Hrátt kjöt eða kjöt sem hefur ekki verið  eldað í gegn.
4)  Geislar.
5)  Koffín (kaffi, svart te, kók, súkkulaði og  mate vegna koffíns).
6)  Aspirín.
7)  Antihistamín (líka jurtina ma huang eða ephedra).
8)  Flestar laxerandi jurtir.
9)  Lyf gegn sýru í maga.
10) Vatnslosandi lyf og jurtir (buchu, klóelfting og einiber).
11) Hárlitunarefni.
12) Örvandi efni og þunglyndislyf.
13) Jurtir og lyf sem innihalda steralík efni eins og ginseng, lakkrís, humall og salvíu. Flestar þessar jurtir draga hvort sem er líka úr mjólkurframleiðslu sem segir að vissu marki hvernig jurtin virkar.
14) Of mikið af A og D vítamíni, og einnig C vítamín. Vítamín sem finnast í jurtum eru langtum öruggari heldur en þau sem við fáum úr pillum. Það er nefnilega oft sem náttúruleg vítamín eru fyllt með kemískum vítamínum.
15) Sterk efni eins og málning, leysiefni, lakk, lím, þurrhreinsunarefni, sumt plast og gúmmí.
16) Kattaskítur.
17) PCB.
18) Eftirfarandi kryddjurtir geta komið af stað fósturláti og er því best að sleppa alveg á meðgöngu: Basil, kúmen fræ, sellerý fræ, engifer, fersk piparrót, savory, marjoram, múskat, rósmarý, saffron, steinselja, estragon og timian. Þessar jurtir þarf að forðast fyrstu þrjá mánuðina þegar mesta hættan er á fósturláti, en eftir það er í lagi að taka þær.

Hvað er hægt að gera til styrktar á meðgöngu?

Til að viðhalda heilbrigðri meðgöngu þarf, auk góðrar og fjölbreyttrar næringar sem þegar hefur verið rætt um, að læra rétta öndun, fá nægt  ljósmagn, vera úti þegar sólin er á lofti, drekka mikið vatn, kærleiksríkt samband við maka, fegurð og jafnvægi í daglegu lífi og vera jákvæður gagnvart lífinu.

Flest vandamál sem upp koma á meðgöngu má fyrirbyggja með góðu mataræði, til dæmis morgunógleði og geðsveiflur, sem stafa af ójafnvægi í blóðsykrinum og hægt er að jafna  með grófu korni, grænmeti, og með því að  borða oft en lítið í einu. Bakverkur, of hár blóðþrýstingur og miklir verkir á meðgöngu stafa af kalkskorti og æðahnútar, gyllinæð, hægðatregða og blóðleysi stafa af skorti á sértökum vítamínum. Það er kannski ekkert skrýtið þó að upp komi næringarskortur þegar haft er í huga að það eru að vaxa ný líffæri í nýjum einstaklingi og blóðmagnið í konunni þarf að aukast um 50%.
 

Meðal þeirra jurta sem ráðlegt er að taka á meðgöngu til að styrkja leg og koma í veg fyrir að ýmsir kvillar komi upp er HINDBERJALAUF, eins og þegar er búið að nefna. Jurtin inniheldur mikið af C, E, B og A vítamínum og mjög auðupptakanlegu kalki og járni, fosfór og kalíum. Áhrif hennar eru:

  1. Eykur frjósemi hjá konum og körlum.
  2. Kemur í veg fyrir fósturlát og blæðingar.
  3. Mildar morgunógleði.
  4. Minnkar fæðingarverki.
  5. Jurtin hefur einnig þau áhrif að í fæðingunni gefur legið auðveldlegar eftir þannig að það myndast ekki spenna og verkir verða minni. Þetta eykur ekki krampana heldur leyfir leginu að vinna betur og fæðingin gengur léttar fyrr sig.


Þá komum við aftur að BRENNINETLUNNI, en hún gagnast fyrst og fremst vegna steinefnanna. Kona sem áður hefur fengið bjúg ætti að nota brenninetlu vegna þess að hún styrkir nýrun. Áhrifin eru þessi:

  • Minnkar krampa í fótum.
  • Kemur í veg fyrir mikla blæðingu eftir fæðingu.
  • Minnkar líkur á gyllinæð og æðahnútum.
  • Örvar mjólk í brjóstum kvenna.


Jurtir gegn óleði eru:

  1. Kamilla
  2. Piparmynta
  3. Hindberjalauf
  4. Anis
  5. Fennel


Ef líkur eru á fósturláti ætti kona að forðast að nota engifer. Það hefur verið notað við ógleði á meðgöngu en slíkt ætti að láta ógert fyrstu 3 mánuðina. Það eru til jurtir sem hægt er að nota þegar svona stendur á en ég nefni þær ekki því þetta eru sterkar jurtir og fást ekki hér á landi. E vitamin getur hjálpað í sumum tilfellum. 

Vallhumall er jurt sem hægt er að nota við ýmsum kvillum á meðgöngu, svo sem æðahnútum og gyllinæð. Best er að nota hana að staðaldri sem fyrirbyggjandi því hún er svo mild að það tekur hana nokkra mánuði að virka.
 

Næringartafla

EFNI ÓFRÍSK KONA M/BARN Á BRJÓSTI VENJULEGA
Orka (kcal) 2500 2700 2200
Prótein (g) 60 65 44 - 50
Kalk (mg) 1200 1200 800
Fosfór (mg) 1200 1200 800
Járn (mg) 30 15 15
Magnesíum (mg) 320 355 280
Joð (mcg) 175 200 150
Sink (mg) 15 19 12
Selen (mcg) 65 75 55
A vítamín (mcg) 800 1300 800
D vítamín (mcg) 10 10 10

 

Til baka

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn