Rósaviðar olía - 10ml.


3.170 ISK

Uppseld vara


Vörulýsing

VNR: 1139

Rósaviður (Aniba rosaeodora)
Olían er upplífgandi, milt verkjastillandi, sótthreinsandi, lykteyðandi, kynörvandi, skordýrafæla og bakteríudrepandi. Hún er styrkjandi fyrir allan líkaman og er oft góð fyrir fólk sem þarf að keyra langar vegalengdir því hún skerpir athygli. Mjög góð húðolía því hún kemur jafnvægi á feita og þurra húð ásamt því að örva myndun nýrra húðfruma og er því endurnýjandi fyrir húðina.


Virk efni: M.a. alfa-pinen, camphen, geraniol, neral, geranial, myrcen, limonen og linalool. 


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað:  Blandið 5 - 10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur.  Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn