Petigrain olía - 10 ml.


1.660 ISK

Fjöldi

Bæta í körfu

Vörulýsing

VNR: 1135

Petigrain (Citrus aurantium folia)
Olían er sótthreinsandi, krampastillandi, upplífgandi, lykteyðandi, róandi og taugastyrkjandi. Olían er frískandi og oft notuð í ilmvötn. Hún er góð við taugaþreytu, streitu og kvíða. Hún róar hugan, slakar á vöðvum, auðveldar andardrátt, hægir á hjartslætti og slakar á maganum. Olían er góð við svefnleysi ásamt því að koma jafnvægi á feita húð, bólur og of mikla svitamyndun.


Virk efni: M.a. geraniol, linalool, nerol, geranyl acetat, myrcen og trans-ocimen.


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað:  Blandið 5-10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í 5-10 mínútur.  Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn