Lavender olía - 30 ml.


4.620 ISK

Fjöldi

Bæta í körfu

Vörulýsing

VNR: 1159

Lavender (Lavandula angustifolia)
Olían er bólgueyðandi, mjög græðandi, sótthreinsandi, krampastillandi, upplífgandi, bakteríu- og vírusdrepandi, slímlosandi, lykteyðandi, vökvalosandi og einstaklega róandi. Hún er örvandi fyrir sogæðakerfið og þar með á efnaskipti húðar og líkama. Getur virkað bæði sem örvandi eða róandi fyrir líkama og sál. Mjög góð fyrsta hjálp við bruna og hún er mild þannig að bæði börn og ófrískar konur geta notað hana.


Virk efni: M.a. alfa-pinen, limonen, camphor, linalool og lavendulyl acetat. 


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað:  setjið 5-10 dropa af hreinum ilmkjarnaolíum út í baðvatn.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax. Einn dropi á koddan fyrir svefn hjálpar fólki að róa sig fyrir svefn.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn