Kamfóru olía - 10 ml.


1.350 ISK

Fjöldi

Bæta í körfu

Vörulýsing

VNR: 1118

Kamfóra (Cinnamomum camphora)
Olían er örvandi fyrir alla líkamsstarfsemi, bakteríudrepandi, sótthreinsandi, skordýrafæla, bólgueyðandi, taugaróandi, krampastillandi, eykur blóðflæði og er slímlosandi. Hún er mjög góð við kvefi og hósta og einnig góð við vöðva- og liðverkjum. Þar sem hún er mjög bólgueyðandi þá er hún góð á bólur og einnig ofnæmisviðbrögð í húð. Hún virkar líka vel sem staðdeyfing.


Virk efni: M.a. borneol, pinen, camphen, camphor, terpen og safrol.


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: Blandið 5-10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn