Frankincense olía - 5 ml.


2.950 ISK

Fjöldi

Bæta í körfu

Vörulýsing

VNR: 1110

Frankincense (Boswellia carterii)
Olían er sótthreinsandi, bakteríudrepandi, samandragandi, vindeyðandi, örvar meltingu, vökvalosandi, slímlosandi, róandi, kemur jafnvægi á estrogen framleiðslu líkamans og hjálpar sárum að gróa hraðar. Olían er mjög góð fyrir kvíða, streitu og þunglyndi því hún lyftir andanum og róar um leið. Hún er mjög góð til að koma jafnvægi á blæðingar og minnkar fyrirtíðarspennu, tíðarverki og er góð á breytingaskeiðinu. Olían er hóstastillandi og slímlosandi og því góð í allar kvefblöndur. Olían er mjög góð fyrir feita húð og eldri húð þar sem hún minnkar hrukkur, minnkar fituframleiðslu húðarinnar og minnkar sár og ör af völdum bóla.


Virk efni: M.a. alfa-pinen, actanol, linalool, acetate og incensol.


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað:  Blandið 5 - 10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur.  Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn